We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Sk​í​tt með það

from Óbreytt ástand by Mosi frændi

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      $1.50 USD  or more

     

lyrics

Það er búið að loka öllum sjoppunum sem ég stólaði mest á
Og ef mig vantar hressingu er hvergi neitt að fá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn

Það er búið að loka öllum börunum og hverri einustu krá
Leggja þau öll niður, byggja hótel stór og smá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn

Skítt með það, skítt með það
Við skemmtum okkur samt ef þú vilt vera með
Skítt með það, skítt með það
Brennivínið bætir okkar geð

Það er búið að loka öllum hótelunum sem ég gisti á
Jafna þau við jörðu, reisa skýjakljúfa þrjá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn, eða hinn

Það er búið að rífa skýjakjlúfana sem ég sagði ykkur frá
Ryðja þeim í sjóinn, nú er ekkert þar að sjá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn, eða hinn

Skítt með það, skítt með það
Við skemmtum okkur samt ef þú vilt vera með
Skítt með það, skítt með það
Brennivínið bætir okkar geð

Nú stendur ekkert eftir í borg við sundin blá
Nema þrír eða fjórir bankar með erlendum nöfnum á
Ég mun alltaf verða í straffi og ég kemst aldrei inn
En á morgun er morgundagurinn

Skítt með það, skítt með það
Við skemmtum okkur samt þó enginn sé með
Skítt með það, skítt með það
Brennivínið bætir okkar geð
Skítt með það

credits

from Óbreytt ástand, released September 29, 2017
Lag: Björn Gunnlaugsson
Texti: Björn Gunnlaugsson og Jón Benjamín Einarsson

license

all rights reserved

tags

about

Mosi frændi Iceland

contact / help

Contact Mosi frændi

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this track or account

If you like Mosi frændi, you may also like: