1. |
Aðalfundurinn
01:49
|
|||
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
Ég varð fyrir umtalsverðum vonbrigðum á fundinum og allnokkur atriði voru verulega óljós
mikið var um fúkyrði
og mórallinn núll á núvirði
mikið var um fúkyrði
og mórallinn núll á núvirði
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
grasasnar og bjánar
fasistanna fánar
grasasnar og bjánar
fasistanna fánar
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
ég elti fólk
og ég drekk mjólk
svo nú er félagið
komið í tojlettið
slettist nú ógeðið
um allt internetið
(fundarstjórasköp)
|
||||
2. |
Milli
02:46
|
|||
finnst ég vera milli steins og sleggju
er að falla milli skips og bryggju
þarf að sigla milli skers og báru
ég er milli heims og helju
ég er milli tveggja elda
kalt vatn milli skinns og hörunds
hvað leynist milli þils og veggjar?
hvað er milli mín og þín?
milli mín og þín
milli mín og hennar
milli ykkar beggja
er glötun mín
milli mín og þín
milli mín og hennar
milli ykkar beggja
er sæla mín
nú ligg ég milli svefns og vöku
enn og aftur milli vonar og ótta
við að lenda milli stafs og hurðar
óttast allt milli himins og jarðar
milli mín og þín
milli mín og hennar
milli ykkar beggja
er glötun mín
milli mín og þín
milli mín og hennar
milli ykkar beggja
er sæla mín
það er munur milli þá og nú
sem skilur milli alls og einskis
allt gerist milli upphafs og endis
allt gerist milli mín og þín
milli mín og þín
milli mín og hennar
milli ykkar beggja
liggur framtíð mín
milli mín og ykkar
vil ég glaður vera
milli þín og hennar er
ég ...
|
||||
3. |
Ungfrú Mósambík
03:28
|
|||
Hver stendur þarna í þvögunni vid Gaukinn?
og ilmar óljóst af einiberjaveip
með stjarfan svip og slatta af tómlæti
hún teigar allt í einum sveip
Stúlkan er staðreynd sem erfitt er að gleyma
í saumaklúbbum ber hana alloft á góm
henni væri nær að halda sig heima
svo er logið upp svæsnum kynsjúkdóm
Hún var eitt sinn ungfrú Mósambík
en í Séð og Heyrt stóð skrifað
að hún væri bara bölvuð tík
lífinu er vissulega vandlifað
það klæðir ei konu að vera nautnafrík
hvorki í Mapúto, Ríad, né Reykjavík
Hún liggur á grúfu í grasinu við Arnarhól
enga hefur hún á sér flík
ekki einu sinni skitin chiffonkjól
ungfrú Mósambík, þú ert liðið lík
Hún var eitt sinn ungfrú Mósambík
en í Séð og Heyrt stóð skrifað
að hún væri bara bölvuð tík
lífinu er vissulega vandlifað
það klæðir ei konu að vera nautnafrík
hvorki í Mapúto, Ríad, né Reykjavík
og í Séð og Heyrt stendur skrifað
fjörið varð henni að förtjóni
fjörið varð henni að förtjóni
fjörið varð henni að förtjóni
það klæðir ei konu að vera nautnafrík
hvorki í Mapúto, New York, né Reykjavík
hvorki í Mapúto, Riad, né Reykjavík
hvorki í Mapúto, Riad, né Reykjavík
fjörið varð henni að förtjóni
fjörið varð henni að förtjóni
fjörið varð henni að förtjóni
|
||||
4. |
Losti í meinum
03:18
|
|||
klappa strjúka kyssa kjassa
kinnar læri varir rassa
bíta rífa kreista klóra
langar langar kisulóra
verðum allt að geyma geyma
því við eigum hvergi heima
okkur gengur ekkert að
finna okkur samastað
osti í meinum
veinum veinum
samt við reynum
reynum, reynum
kossi í leynum
náum einum
losti í meinum
logar glatt í mínum beinum
okkur fer að langa langa
höfum úti alla anga
en við fáum hvergi inni
til að eiga náin kynni
þegar við svo loksins náum
saman oog: fáum fáum
þá ég ætla ekk' að bíða
ætla ætla þér að stríða
losti í meinum
veinum veinum
samt við reynum
reynum, reynum
kossi í leynum
náum einum
losti í meinum
logar glatt í mínum beinum
|
||||
5. |
Biblíusögur á hafsbotni
02:36
|
|||
Hvar setti ég drykkinn minn, ég finn ekki fyrir neinu
Kinnarnar eru dofnar, ég er risarokkstjarna
Löggan sveimar um og ég hreyfi fæturna
Hækka í græjunum, gleymi deginum
Mig svíður í hálsinn
Augun brenna
Fingurnir titra
Elsku mamma
Vóóóóóóóó
Ég er ódrepandi
Vóóóóóóóó
Sá eini hér á landi
Þetta er erfitt partí
Sem verður aldrei aftur
Það þýðir ekki að flýja
Þú færð hvergi meira
Tárin fylla augun
Því allt er svo glatað
Allt er svo fallegt
Svo yfirþyrmandi
Vóóóóóóóó
Ég er ódrepandi
Vóóóóóóóó
Sá eini hér á landi
Vóóóóóóóó
Ég er ódrepandi
Vóóóóóóóó
Sá eini hér á landi
Hermi eftir mömmu
Leggst á jörðina
Biblíusögur
Á hafsbotni
Hvar setti ég drykkinn minn, ég finn ekki fyrir neinu
Kinnarnar eru dofnar, ég er risarokkstjarna
Löggan sveimar um og ég hreyfi fæturna
Hækka í græjunum, gleymi deginum
|
||||
6. |
||||
Hóteldólgur hámur nettur
torgaði miklu
týndi augnablik sorginni
standandi á stilkum
sjáöldrin bólgin, þanin
Hóteldólgur háttstemmdur
Enginn ræður sínum næturstað.
versnar með nóttu hverri
hirtu ekki hætingshót
um Sverri
Enginn ræður sínum næturstað.
versnar með nóttu hverri
hirtu ekki hætingshót
um Sverri
Líkt og hvalur strandsettur
Búkurinn ber
handtekinn í miðborginni
Eins og í hnyklum
illa farin blár og marin
Hóteldólgur hálfskemmdur
Enginn er bróðir í annars neyð
hóteldólgur eða perri
hirtu ekki hætinghót
um Sverri
Enginn er bróðir í annars neyð
hóteldólgur eða perri
hirtu ekki hætinghót
um Sverri
Þvögulmæltur ættarblettur
þungur í lund
flugferð endaði í skipbroti
í leit að lyklum
heimsendur í snarhasti
Hóteldólgur háskælandi
Ekki er það neinum bót,
þó annar sé verri
hirtu ekki hætingshót
Um Sverri
Ekki er það neinum bót,
þó annar sé verri
hirtu ekki hætingshót
Um Sverri
|
||||
7. |
Alexander Nix
00:56
|
|||
He's Alexander Nix
he's got a bag of tricks
big data is his game
we all fit in his frame
This open individual is
very conscientious
an agreeable extrovert
you'll never see him nervous
Algorithms
Online trail
Phobias
perversions
Porno
Pets and petty
Peeves
Lol smileyface
A hashtag
He's Alexander Nix
he's got a bag of tricks
big data is his game
we all fit in his frame
He's Alexander Nix
he's got a bag of tricks
big data is his game
we all fit in his frame
He's Alexander Nix!
|
||||
8. |
Crossfit vélmenni
02:41
|
|||
Ég verð að hlaupa, lyfta, hjóla,
Synda, skíða, ganga á fjöll
Og vera sætur, stæltur, sexý
Ríkur, kýldur eins og trölll
Hendi mér í backflip eins og crossfit vélmenni
Ég get ekki meira
Ég get ekki meira
Ég get ekki meira
Alltaf í flugvél, þyrlu, limmu
Snekkju, ferju, bíl og lest
Og fer til Osló, Tene, New York
Casablanca, Vín og Bresth
Alveg laus við tilgang eins og crossfit vélmenni
Ég get ekki meira
Ég get ekki meira
Ég get ekki meira
Ég er með kokkteil, brosið frosið
Sérðu bindishnútinn minn
Ég þekki engan, alla, engan, alla
Engan, alla, engan, alla
Engan, alla, engan, alla
Engan, alla, engan, alla
Ég get ekki meira
Ég get ekki meira
Ég get ekki meira
|
||||
9. |
Reið
02:22
|
|||
Ríðum yfir kalda sanda,
holt og hæðir, foss' og gjá.
Mundum tygin milli handa.
Reiðin endar tindi á.
Hvellur vellur, aldan skellur.
Rekkjan ruggast til og frá.
Ískur, pískur, spriklar frískur.
Skaftið þrýstir vegginn á.
Fjúkum fram af út í vindinn,
teygjum fingur, legg' og tær.
Fljúgum hátt og yfir tindinn,
svífum hratt um skýjaær.
Hvellur vellur, aldan skellur.
Rekkjan ruggast til og frá.
Ískur, pískur, spriklar frískur.
Skaftið þrýstir vegginn á.
Hröpum hægt á víðan völlinn,
veltumst um í hitahaf.
Öndum ótt og kæfum köllin,
Svitann strjúkum enni af.
Hvellur vellur, aldan skellur.
Rekkjan ruggast til og frá.
Ískur, pískur, spriklar frískur.
Skaftið þrýstir vegginn á.
|
||||
10. |
Uppblásið karma
03:42
|
|||
Uppþemba, vindverkir, niðurgangur
Hvað er það sem gengur að mér?
Magapína, fret og þarmaangur
Mér líður sífellt ver og ver
(ver og ver)
Mig vantar ensím fyrir glúkósa
Get ekki brotið hann niður
Enginn sykur, annars mun gjósa
Í þörmum er aldrei friður
(aldrei friður)
Ég geislaði af sjarma
Tók þig í mína arma
En þá kom þetta karma
Með uppblásna þarma
Svo varstu farin
Og ekki á barinn
Svo varstu farin
Og ekki á barinn
Ég sá þig dansa
Og féll í trans
Húðina glansa
Misst’allan sans
Ég verð að duga
Ótta á bug
Herti upp huga
Tókst svo á flug
Þú brostir blíðu
Alsælu líð
Augun þín fríðu
Hjarta mitt býð
Geislað’af sjarma
Þandi minn barm
Kom þetta karma
Ber ég þann harm
Glúteinóþol er nýjasta frétt
Þarmaflóran bregður á leik
Útbý paleo frá Eldum rétt
Samt er meltingin áfram í steik
(áfram í steik)
Ég geislaði af sjarma
Tók þig í mína arma
En þá kom þetta karma
Með uppblásna þarma
Svo varstu farin
Og ekki á barinn
Svo varstu farin
Og ekki á barinn
|
||||
11. |
Endastöð þjáninga
04:09
|
|||
Sé heim logandi í illsku
fólk á skjám að fjölga sér
veruleikinn versti óvinur minn
Horfir yfir sviðið, það er ekkert hér
Alltaf svangur alltaf þyrstur alltaf veikur, alltaf dapur
Mig klæjar, það verkjar, svíður
Alltaf þreyttur alltaf kaldur alltaf reiður, aldrei graður
Bíð í biðröð, tek númer, pizzan þín er lögð af stað
hefði verið betra að fara hvergi
hefði verið betra að sofa lengi
gæti verið skárra að fæðast ekki
hefði verið betra að fæðast aldrei
Löng sorgarnótt
Ólinandi þjáning
Nístir inn að beini
Versta kvöld í heimi
Tilgangslausar þrautir
Sársauki án enda
Sorg hefur enga merkingu
Sorg að eilífu
Orðinn gamall, orðinn ljótur orðinn grár og orðinn feitur
Mig klæjar, það verkjar, svíður
Orðinn pabbi, orðinn afi, orðinn einn og yfirgefinn
Á ekki snöru, hringi í Klöru, engin svarar
þori ekki að deyja strax
hefði verið betra að fara hvergi
hefði verið betra að sofa lengi
gæti verið skárra að fæðast aldrei
hefði verið betra að fæðast aldrei
Ekkert við þessu að gera
Ekkert við þessu að gera
Ekkert við þessu að gera
Ekkert við þessu að gera
|
||||
12. |
Niturdrep
03:58
|
|||
Líkt og hver önnur Lísa
dett ég inn í spegilinn
spegillinn, hann er djúpur
svo ég drukkna þar um sinn
spegillinn, hann er djúpur
svo ég drukkna þar um sinn
Fuglinn flái við rúmstokkin hér
hann vill ég fái mér blund
en ég, ég drukkna helst í sjálfum mér
ligg vakin í gasinu um stund
en ég, ég drukkna helst í sjálfum mér
ligg vakin í gasinu um stund
Þeir færa mig dýpra niður
Þeir færa mig dýpra niður
Færi þér liljur í Lúxemborg
en Lou, þú ert ekki þar
því Lou, þú ert lögga við hlemmtorg
sem yfirheyrir þögnina sem á sér ekki stað
því Lou, þú ert lögga við hlemmtorg
sem yfirheyrir þögnina sem á sér ekki stað
offramboð kjaftæðis er takmarkið
eftirspurnin endalaus
yfirborðið ég nálgast nú óðum
sé glitta í fálkahaus
yfirborðið ég nálgast nú óðum
sé glitta í fálkahaus
Færi mig aftur niður
Færi mig aftur niður
Færi mig ávallt niður
Færi mig ávallt niður
|
Streaming and Download help
If you like Mosi frændi, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp