1. |
Ekkert hef ég lært
03:19
|
|||
Ég var sendur á eina milljón ókeypis námskeið
Ég lenti á tunglinu í aprílbyrjun
Gisti tugthúsið ásamt Neil Armstrong
Ekkert hef ég lært
Margan hef ég sært
Sjaldan er mér vært
Mér var útdeilt dánarvottorði í upphafi sumars
Hitti fyrir djöfulinn á Félagsmálastofnun
Ég var Jesús, ég var Júdas
Ekkert hef ég lært
Margan hef ég sært
Sjaldan er mér vært
Ég hef verið í Bónus og borðað blá epli
Ég merkti hurðina þína og ég kastaði fyrsta steininum
Skrifaði í Velvakanda og hringdi í Nærmynd
Ekkert hef ég lært
Margan hef ég sært
Sjaldan er mér vært
Ég gekk á vatninu og beint inn í vegginn
Ég var barn, ég sótti stöðugt í eldinn
Ég var í biðröð og verslaði í matinn
Ekkert hef ég lært
Margan hef ég sært
Sjaldan er mér vært
|
||||
2. |
Aulinn Atli
02:33
|
|||
Eftir ósigur ástarinnar, kuldann í Kötlu
Og allt það djöfuls vesen gerðist ég vondur
Vondur, vondur, vondur
Verri en Voldemort
Grimmari en Grimmhildur
Siðblindari en Sauron
Óð í útrásina, eignaðist kíló kúlna
Kældi þær á Cayman og er bara djöfull keikur
Keikur, keikur, keikur
Verri en Voldemort
Grimmari en Grimmhildur
Siðblindari en Sauron
Keypti mér kúl eyju, holaði hana að innan
Eignaði mér einkaher og dressaði hann í latex
Latex, latex, latex
Verri en Voldemort
Grimmari en Grimmhildur
Siðblindari en Sauron
Þrykkti í þrusuefnasýklavopnasprengjudæmi
Stillti niðurteljarann á korter í heimsendi
Endi, endi, endi
Verri en Voldemort
Grimmari en Grimmhildur
Siðblindari en Sauron
James Bond mætti ekki, hvorki Teygjumey né Tinni
Engar ofurhetjur, CIA eða Stebbi Eiríks
Kaldur, kaldur, kaldur
Vondari en Voldemort
Grimmari en Grimmhildur
Kaldari en Katla
|
||||
3. |
Ó Reykjavík
02:29
|
|||
4. |
Óbreytt ástand
04:06
|
|||
Er búið að segja upp aftur?
Hérna er ekki kjaftur nema nú
Hálfur starfskraftur og það ert þú
Óbreytt ástand
Það er óbreytt ástand
Hækkandi gengi og kúnstug mengi
Tíðindalaust á mínum vígstöðvum
Ég hélt að allt væri orðið breytt
En hér breytist aldrei neitt
Óbreytt ástand
Það er óbreytt ástand
Er allt að fara til fjandans aftur?
Hérna er ekki kjaftur nema nú
Einstaka fylliraftur og svo þú
Í Frystikistulandi
Óskeikull að vanda
Of lítill til að falla
Í Frystikistulandi
Óskeikull að vanda
Of lítill til að falla
Í Frystikistulandi
Fangi eigin banda
Í frystu hlandi, í frystu hlandi
Er hún farin frá þér aftur?
Hérna er ekki kjaftur nema nú
Einstaka fylliraftur, essasú?
Óbreytt ástand
Það er óbreytt ástand
Hækkandi gengi og kúnstug mengi
Tíðindalaust á mínum vígstöðvum
Ég hélt að allt væri orðið breytt
En hér breytist aldrei neitt
Óbreytt ástand
Það er óbreytt ástand
Óbreytt ástand
Hér er óbreytt ástand
|
||||
5. |
||||
Útrásarvíkingurinn snýr aftur
Hann á banka
Hann á tanka
En ekki marga djúpa þanka
Og nú snýr hann aftur
Á morgun koma þeir og vekja þig
Á morgun koma þeir og hrekja þig
Á morgun koma þeir og þekja þig
Á morgun koma þeir og grilla þig
Útrásarvíkingurinn snýr aftur
Hann traðkar á blómunum þínum
Hann grillar börn og konur
Hann borðar börn og konur
Og nú snýr hann aftur
Og þegar hjartað brestur
Og þegar heilinn springur
Er víkingurinn úti að grilla
Útrásarvíkingurinn snýr aftur
Útlit fyrir frekari landnám
Búslóðin komin oní gám
Búslóð og börn læst úti í gám
Útlit fyrir frekari landráð
Útrásarvíkingurinn snýr aftur
Aftur og aftur og aftur
|
||||
6. |
Hanzki kannski
00:53
|
|||
Ég er slökkviliðsmaður
Ég er alls ekki glaður
Því að eldurinn hefur hitnað
Og það hefur á mér bitnað
Hanzki kannski
Ég er kafaramaður
Ég er enn síður glaður
Því að vatnið það hefur blotnað
Mitt egó er sundurgrotnað
Hanzki kannski
Drulla skítur rassgat piss
Það er allt að fara í rassgat
Hundarnir eru loðnari
Pulsurnar eru soðnari
Krakkarnir eru villtari
Og tónlistin stöðugt trylltari
Hanzki kannski
Ég er bakaradrengur
En ekki mikið lengur
Því að piparkökuþjófar
Eru ei lengur álitnir bófar
Hanzki kannski
|
||||
7. |
Skítt með það
03:11
|
|||
Það er búið að loka öllum sjoppunum sem ég stólaði mest á
Og ef mig vantar hressingu er hvergi neitt að fá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn
Það er búið að loka öllum börunum og hverri einustu krá
Leggja þau öll niður, byggja hótel stór og smá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn
Skítt með það, skítt með það
Við skemmtum okkur samt ef þú vilt vera með
Skítt með það, skítt með það
Brennivínið bætir okkar geð
Það er búið að loka öllum hótelunum sem ég gisti á
Jafna þau við jörðu, reisa skýjakljúfa þrjá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn, eða hinn
Það er búið að rífa skýjakjlúfana sem ég sagði ykkur frá
Ryðja þeim í sjóinn, nú er ekkert þar að sjá
Ég er alls staðar í straffi og ég kemst hvergi inn
En á morgun er morgundagurinn, eða hinn
Skítt með það, skítt með það
Við skemmtum okkur samt ef þú vilt vera með
Skítt með það, skítt með það
Brennivínið bætir okkar geð
Nú stendur ekkert eftir í borg við sundin blá
Nema þrír eða fjórir bankar með erlendum nöfnum á
Ég mun alltaf verða í straffi og ég kemst aldrei inn
En á morgun er morgundagurinn
Skítt með það, skítt með það
Við skemmtum okkur samt þó enginn sé með
Skítt með það, skítt með það
Brennivínið bætir okkar geð
Skítt með það
|
||||
8. |
||||
Mig þyrstir í lindir þínar Lísa
Já allar þessar fýsnir mínar þær liggja til yðar skvísa
Og járnkarlinn minn leðurnærbuxurnar ei lengur hýsa
Ó ef ekki gætti þín ávallt drekynjan hún Dísa
En Einar, stúlkur eru aldrei einar
Nei Einar, stúlkur eru aldrei einar
Hversvegna eru stúlkur aldrei einar, Einar?
Þarna kemur ein svo sæt svo sæt
Það var hún sem kom fyrir í draumum mínum allar mínar blautustu nætur
Við horfumst í augu og ég veit þú ert æt ég veit þú ert æt
Birtist þá vinur þinn vondi og ég græt
Vona að þið eignist dætur
En Einar, stúlkur eru aldrei einar
Nei Einar, stúlkur eru aldrei einar
Hversvegna eru stúlkur aldrei einar, Einar?
þær geta verið frygðnæmar og fýsnaheitar
þær finnast einnig hreinar og beinar
sumar eru sísveittar og svakafeitar
flestar eru seinar að fatta hvað þú meinar
já margar eru þykkari en steinar
en einar finnast ei neinar
Einar, stúlkur eru aldrei einar
Nei Einar, stúlkur eru aldrei einar
Hversvegna eru stúlkur aldrei einar, Einar?
En Einar, stúlkur eru aldrei einar
Nei Einar, stúlkur eru aldrei einar
Hversvegna eru stúlkur aldrei einar, Einar?
|
||||
9. |
Sláturtíð
03:14
|
|||
Ég lít á þig og þá fer allt að loga
Himininn opnast, sendir mér regnboga
Banalt er ljóðið, blús af gömlum toga
Brátt fer ég inn, blóðmör um með roga
Á óttum oft að mér sækir uggur
Ást mig umflýtur, ennþá gamlar tuggur
Ég lít á þig en þú ert aðeins skuggur
Guðmundur Thorsteins var oft nefndur Muggur
Það er sláturtíð svo björt og blíð
Ekkert stríð, áfram ég líð
Á bleiku skýi á Íslandi
Dimmalimm bjó í höll við tjörnu tæra
Svaninum fagra frelsið vildi hún færa
Þú minnir mig á himinstjörnu skæra
Þig vil ég frelsa ástin mín eina, kæra
Það er sláturtíð svo björt og blíð
Ekkert stríð, áfram ég líð
Á bleiku skýi á Íslandi
Nú er að lokum lokið litlu ljóði
Sem lýrískt er ritað ánna hjartablóði
Flýt þér að færa friðinn feigu fljóði
Flýttu þér, annars ferst ég, elsku góði!
Það er sláturtíð svo björt og blíð
Ekkert stríð, áfram ég líð
Á bleiku skýi á Íslandi
|
||||
10. |
Creeps
05:09
|
|||
11. |
Prinsessan á Mars
05:08
|
|||
Klósettið þitt
Uppfyllir ekki
Ströngustu kröfur
Sérfræðinga
En það fullnægir þér
Já það fullnægir þér
Og prinsessan þín býr á Mars
Með sænskum félagsfræðipönkara
Hann heitir víst Lars
Hann heitir Lars
Hann fyllir tæpast upp
Í hennar þröngu skorður
Nei hann fyllir ekki upp
Í hennar þrengstu skorður
Og það er sama
Hvað þú innbyrðir mikið eitur
Og það er sama
Hvað þú tekur margar geitur
Þú verður alltaf sama skítseyðið
Alltaf sama skítseyðið
Og prinsessan þín býr á Mars
Með sænskum félagsfræðipönkara
Hann heitir víst Lars
Hann heitir Lars
Hann fyllir tæpast upp
Í hennar þröngu skorður
Nei hann fyllir ekki upp
Í hennar þrengstu skorður
|
Streaming and Download help
If you like Mosi frændi, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp